Lögfræðiráðgjöf fyrir framtíðarinnar.
Lögfræðiráðgjöf á sviði hugverka- og tækniréttar með áherslu á að aðstoða fyrirtæki og frumkvöðla við að vernda og hagnýta hugverk ásamt því að leysa úr lagalegum álitaefnum í tengslum við tækni, gervigreind og stafrænar lausnir.
-
Vörumerki og hönnun
Aðstoð við skráningu, vernd og umsýslu vörumerkja og hönnunar á Íslandi og erlendis. Veitt er ráðgjöf um val, notkun og vernd vörumerkja sem og mótun og framkvæmd markvissrar vörumerkjastefnu.
Málsmeðferð í tengslum við andmæli, niðurfellingar og ógildingar, auk samskipta við skráningaryfirvöld, eða aðra vörumerkjaeigendur. Lögð er áhersla á að fyrirbyggja ágreining og tryggja sterka réttarstöðu frá upphafi.
-
Tækniréttur og gervigreind
Ráðgjöf um lagaleg álitaefni sem tengjast tækni og stafrænum lausnum, þar á meðal gervigreind.
Þjónustan nær meðal annars til gerðar og yfirferðar samninga, ráðgjafar um persónuvernd og meðferð gagna, sem og álitaefna er varða hugverkarétt, eignarhald og nýtingu efnis sem verður til með eða með aðstoð gervigreindar.
Lögð er áhersla á að styðja fyrirtæki við að innleiða tæknilausnir með ábyrgum og lögmætum hætti, draga úr áhættu og tryggja samræmi við gildandi regluverk.
-
Höfundaréttur
Ráðgjöf um höfundarétt, þar á meðal vernd og nýtingu t.d. kóða, texta og annarra skapandi verka.
Aðstoð við samningagerð, þar á meðal nytjaleyfi, framsal réttinda og samstarfssamninga, með það að markmiði að tryggja skýra réttarstöðu og hámarka verðmæti verka. Einnig er veitt ráðgjöf um álitaefni sem snerta stafræna dreifingu, efnisnotkun og mörk heimilaðrar notkunar.
-
Hugverkastefna
Aðstoð við mótun og innleiðingu heildstæðrar hugverkastefnu sem styður við markmið og áætlanir fyrirtækja.
Stefnan felur í sér greiningu á hugverkaréttindum, forgangsröðun og tilmæli um hvernig best er að vernda og nýta þau. Markmiðið er að styðja við verðmætasköpun og samkeppnisstöðu fyrirtækja.
Lögð er áhersla á að hugverkaréttindi séu nýtt með markvissum hætti í rekstri og þróun fyrirtækja.
Dagný Fjóla Jóhannsdóttir
Undanfarin 12 ár hef ég unnið í tengslum við vörumerki, einkaleyfi og hönnun - bæði hjá lögmannsstofu, hjá Hugverkastofunni og Hugverkastofu Evrópusambandsins á Spáni.
Samhliða hef ég sérhæft mig í þeim álitaefnum sem verða til á mörkum hugverka- og tækniréttar, þar sem hugbúnaður, stafrænar lausnir og ný tækni kalla á skýra og vandaða yfirferð.
Reynslan hefur kennt mér aftur og aftur að miklu máli skiptir að vanda til verka frá upphafi þegar kemur að fyrirtækjarekstri - ekki síst í hugverka- og tæknimálum þar sem ákvarðanir á fyrstu stigum geta haft langvarandi áhrif á verðmæti og samkeppnisstöðu fyrirtækja.
Markmið mitt er að veita framúrskarandi og heildstæða ráðgjöf í tengslum við hugverka- og tækniréttarmál, svo með sanni megi segja að vandað hafi verið til verka.
Ég býð einnig upp á alhliða þjónustu í vörumerkja- og hönnunarmálum þegar upp koma álitamál eða ágreiningur, hvort sem þau tengjast skráningaryfirvöldum eða öðrum aðilum á markaði.
Starfsreynsla:
2024 - 2026 - Sviðsstjóri Hugverkasviðs hjá Hugverkastofunni
2020 - 2022 - Lögfræðingur hjá Hugverkastofu Evrópusambandsins
2017 - 2023 - Lögfræðingur hjá Hugverkastofunni
2014 - 2016 - Lögfræðingur hjá Tego IP Consulting
Menntun:
2014 – M.L. í lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík
2017 – Héraðsdómslögmannsréttindi
2025 – LLM í tæknirétti frá Háskólanum í Edinborg